Jeeves og Wooster

Á bæjarbókasafninu eru ekki margar bækur. Nokkur þúsund spænskar og svona 43 enskar. Í enskuhillunni rakst ég á bók sem heitir Right Ho, Jeeves eftir Wodehouse. Ég kannaðist aðeins við þetta fyrirbæri, vissi af þáttunum sem gerðir voru eftir bókunum, en ég hafði annars litla hugmynd um ðettað. Og ég verð að segja að þetta er skrambi skemmtileg bók. Stikkorð sem lýsa henni: Oscar Wilde, farsi, Fýkur í laufi, Tweed, stiff upper lip.

Hvað segið þið, gott fólk, einhver sem hefur sterkar skoðanir á þessu fyrirbæri? Þekkið þið höfundinn vel? Skrifaði hann fleira gott?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú talar um Wodehouse.

Skó. Ég veit ekki betur en þetta sé einn nafnkunnasti rithöfundur enskur á 20. öldinni, þekktastur fyrir gamansaman tón í frekar heimilislegum litteratúr, ef ég fer rétt með. Og ég held að hann hafi skrifað heil reiðinnar býsn, gott ef ekki nokkra bókaflokka.

Einhvern tima var eitthvað lesið eftir kallinn í enskudeildinni hér, en ég man reyndar ekki hvort eða hvað ég hef lesið eftir hann. En það hefur verið talsvert um og eftir hann í íslenska gærusjónvarpinu í gegnum tíðina.

Ég sló upp í gúglinu og fékk þessa slóð á Wikipediu. Þarna má lesa sitthvað um kallgreyið.

http://en.wikipedia.org/wiki/P._G._Wodehouse

svp (IP-tala skráð) 7.10.2007 kl. 10:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband