Ég bið að heilsa - e.Lawrence Ferlinghetti (þýðing Arnar Már)

Sérhverri skepnu sem étur og skýtur sitt blóð

og sperrtum veiðimönnum veifandi rifflum á pallbílum

og skyttum og varaliðsmönnum

með sjónauka fyrir augu

og sérhverjum rednekk með sjeffer í bandi

og afsagaðar haglabyssur

og sérhverjum skerfara með mannsins tryggasta vin

á slóð einhvers sem er að flýja

og sérhverju óeinkennisklædduleynimenni

með axlarhulstur troðfullt af dauða

og sérhverjum þeim sem bugta sig fyrir byssumönnum

og þeim sem skjóta þá sem flýja

og sérhverjum lögggæslumanni með lögin í gæslu

með handjárn og kylfur

og sérhverjum landamæraverði á sérhverju checkpointcharley

báðum megin Berlínarmúrsins

bambus- eða tortillatjaldsins

og sérhverri riddaralöggu í skraddarasaumuðum

reiðbuxum með óeirðahjálm úr plasti

og skóreimabindi með sexhleypu í silfurlögðu hulstri

og sérhverjum sírenöðum löggubíl með haglara í skottinu

og sérhverjum flugmanni með sprengjur og napal undir væng

og sérhverju varnarmálaráðuneyti seljandi vopn

til stríðandi fylkinga

og sérhverjum þjóðernissinna af sérhverri þjóð

sem drepur í nafni þjóðarinnar

og sérhverjum spámanni eða skáldi með dálk eða byssu

og sérhverjum valdamanni voldugra landa

og sérhverjum þeim sem drepur og drepur og drepur í nafni friðar.

Ég bið að heilsa ykkur með löngutöng á lofti,

þeirri einu kveðju sem hæfir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góði vinur.  Mér ver bant á að á þessum slóðum væri að finna það nýjasta í höfundarverki Arnars Más.  Ég þarf lengri tíma til að komast í gegnum þetta.  Eitt sýnist mér þó ljóst.  Þú sjálfur, Grímsi spá, Unnur Lilja og hún Hanna frá Æsustöðum ættuð að hoppa uppí næstu rellu og koma ykkur heim.  Þarna hafið þið ekkert að gera.  Hér heima yrði hinsvegar kallað á ykkur úr öllum hornum,- nú þarf þetta land á öllu sínu að halda,- einkum ungu og hugmyndaríku fólki og víst er að markaðurinn fyrir marktæka spámenn hefur aldrei verið sterkari.  Bið að heilsa Svíanum.  Það eru nefnilega býsna góðir menn.  Häsningar.  BV

Björn Vigfússon (IP-tala skráð) 1.11.2008 kl. 18:00

2 identicon

'eg heilsa þér og þínum, ekki með löngutöng, vona að þið eigið góðan sunnudag, vildi óska að þið væruð að koma í kaffi og ég myndi í tilefni þess reyna að búa til einhverskonar tilbrigði af sviðalöppum, en úr sykri, eggjum og hveiti.

Brynja (IP-tala skráð) 2.11.2008 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband